Karlakór KFUM
KARLAKÓR KFUM

Velkomin á heimasíðu kórsins

Karlakór KFUM er kór félaga í KFUM. Allir eru velkomnir í kórinn svo framarlega sem þeir geta sungið. Sérstaklega er skorað á unga menn að ganga til liðs við þennan góða félagsskap.

Karlakór KFUM
NÆST Á DAGSKRÁ

Æfingar eru hafnar!

Æfingar haustsins eru hafnar og tekið er á móti nýliðum og þeir boðnir velkomnir.

Hér birtast fréttir af viðburðum og öðru sem er á dagskrá kórsins þegar fram líða stundir.

VILTU SYNGJA MEÐ OKKUR?

Nýir félagar velkomnir

Karlakórinn er skemmtilegt samfélag þar sem kórfélagar hittast, syngja saman og taka þátt í fjölbreyttu starfi. Nýir félagar eru hjartanlega velkomnir.

Æfingar hefjast að jafnaði um miðjan september og standa fram í maí, með jólahléi.

„Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng, lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.“Davíðssálmur 149,1
UM KÓRINN

Söngur og samfélag

Léttur andi er á æfingum. Félagar í kórnum hafa til skiptis lesið úr Orði Guðs, leitt bæn og valið söng. Kórinn hefur farið í vorferðir, æfingabúðir, haldið jóla- og vortónleika og sungið við ýmis tækifæri í starfi KFUM og KFUK.

Stjórn og tónlistarumsjón

Kórstjóri: Ásta Haraldsdóttir

Píanóleikari: Verið er að ráða nýjan píanóleikara.

Stjórn: Stjórn er valin fyrir kórinn á aðalfundi ár hvert.

ÆFINGAR

Holtavegur 28

Æft er á mánudagskvöldum kl. 19:30–21:30 yfir vetrartímann. Kórstjóri er Ásta Haraldsdóttir.

Hvers vegna Karlakór KFUM?

Söngurinn, félagsskapurinn, ferðirnar og tónleikarnir gera starfið bæði gefandi og skemmtilegt.

KÓRFÉLAGAR

Kórsvæði CAMP

Lög, raddæfingar, nótur, dagskrár, skjöl og annað innra efni kórsins.

Skrá inn á Kórsvæði →